Stjórn Háskólans á Bifröst kveðst harma þá stöðu sem uppi er komin innan skólans. Hún taki stöðuna alvarlega og vilji leita leiða til að koma samtali innan skólans í uppbyggilegan farveg. Stjórnin treysti rektor til að stýra daglegum rekstri skólans.