Kristrún Frostadóttir mun ekki ávarpa Viðskiptaþing í ár og víkur þar með frá áratuga langri hefð að forsætisráðherra ávarpi þingið. Ráðuneytið segir ekki hægt að verða við öllum beiðnum hagsmunasamtaka sem séu fjölmargar.Það er Viðskiptaráð sem stendur fyrir þinginu 12. febrúar og var dagskráin kynnt opinberlega í gær. Ræðumenn og aðrir þátttakendur samanstanda af framámönnum í viðskiptalífinu auk þess sem Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, ávarpar samkomuna.Kristrún ávarpaði þingið í fyrra og var henni boðið að ávarpa þingið í ár en hún kaus að afþakka það. Í svörum frá forsætisráðuneytinu segir að fjöldi beiðna berist frá hagsmunasamtökum um þátttöku í hinum ýmsu viðburðum og ekki sé hægt að verða við þeim öllum.Sem dæmi hafi ráðherra tekið þátt á ársfundi Samtaka atvinnulífsins, iðnþi