Stjórn Háskólans á Bifröst segir stöðuna innan skólans alvarlega og hefur ákveðið að grípa til aðgerða til að koma samtali í uppbyggilegan farveg. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá stjórninni þar sem lögð er áhersla á að taka þurfi á þeim trúnaðarbresti sem upp er kominn.