ÁRNÝ MARGRÉT – HAKK OG SPAGHETTÍ Tónlistarkonan vestfirska Árný Margrét hefur sent frá sér nýja útgáfu af Prins Póló-laginu Hakk og spaghettí í tilefni af 50 ára afmæli Hljóðrita. Árný syngur og spilar á gítar, Kiddi Hjálmur er á rafgítar ásamt Þorsteini Einarssyni, Valdimar Kolbeinn Sigurjónsson á bassa og Kristinn Snær Agnarsson á trommur. HRAFN THORODDSEN – ALONE AGAIN Alone again er lag af nýútkominni sólóplötu Hrafns Thoroddsen sem ber nafnið Terrace og kom út í lok október. Hrafn hefur komið víða við á ferlinum og ber þar helst að nefna Jet Black Joe, Ensími og nú síðast Warmland sem hann deilir með Arnari Guðjónsson. Á þessari sólóplötu, Terrace, kveður við annan tón en hingað til. Lögin eru nærgöngul, með dekkri áferð og viðkvæmari en Hrafns er von og vísa. UNDIRALDAN FIMMTUD