Þjóðernissinnanum Nick Fuentes hefur vaxið mjög ásmegin undanfarin misseri. Hann hefur í mörg ár verið í algjöru aukahlutverki í bandarískri hægripólitík og ekki hlotið mikinn hljómgrunn nema hjá skoðanasystkinum sínum og hörðustu aðdáendum, sem í báðum tilfellum hafa lengi verið tiltölulega fámennir hópar. En núorðið er Fuentes orðinn að meginstraumsfígúru og æ fleiri þekkja hann og vita hvað hann stendur fyrir.Svo virðist sem málflutningur hans um að hvítir, kristnir karlmenn eigi að stýra Bandaríkjunum, að „tilraunin“ lýðræði sé ef til vill fullreynd, að konur eigi ekki að vera á vinnumarkaði og að gyðingar hreiðri um sig í öllum heimshornum og reyni með samanteknum ráðum að beygja yfirvöld þar til fylgispektar við Ísrael, eigi sífellt meira upp á pallborðið hjá bandarískum hægrimönnum.