Sameinuðu þjóðirnar segja Íslamska ríkið vera í töluverðum vexti í Afríku, Mið-Austurlöndum og víðar í heiminum. Margar deildir hryðjuverkasamtakanna hafa aukið umsvif sín og fjölgað árásum. Á fundi Sameinuðu þjóðanna um baráttu gegn hryðjuverkastarfsemi sem haldin var í gær, sagði Alexandre Zouev, einn yfirmanna gagn-hryðjuverkaskrifstofu Sameinuðu þjóðanna, að ógnin frá Íslamska ríkinu hefði aukist jafnt og þétt.