Sveitarfélög þurfa að huga betur að hættu vegna sjávarflóða og þeir sem skipuleggja og byggja hús við fjöruborðið geta ekki vænst þess að fá tjón bætt. Náttúruhamfaratrygging Íslands hefur varað sveitarfélög og húseigendur við þessu. HÆKKANDI SJÁVARBORÐ OG AUKIN HÆTT Á SJÁVARFLÓÐUM Sjávarborð hækkar því jöklar bráðna og sjórinn hitnar og þenst út. Hækkunin hefur aukist síðustu ár og jafnvel er talið að sjávarborð hækki um einn metra á þessari öld. Við Ísland er hækkunin mismikil en sums staðar, eins og við suðurströndina, er lækkun þar sem landið rís undan hopandi jöklum. Sjá má umfjöllun um hækkun sjávarborðas á Vísindavefnum.Nokkur dæmi eru um að sjávarflóð hafi valdið tjóni, til dæmis á Akureyri og ítrekað á Granda í Reykjavík. Sums staðar hefur Vegagerðin byggt varnir eins og á Borg