Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

„Getum eflt samskipti við Grænlendinga á svo mörgum sviðum“

Guðni Th. Jóhannesson, prófessor í sagnfræði og fyrrverandi forseti Íslands, fór yfir samskipti Íslands og Grænlands á málþingi í Háskólanum á Akureyri þar sem meðal annars var spurt hver ætti Grænland. Þar veltu þrír doktorar fyrir sér nýlendustefnu og sjálfsákvörðunarrétti þjóða árið 2026. ÍSLENDINGAR TÖLUÐU NIÐUR TIL GRÆNLENDINGA ALLT FRAM Á SÍÐUSTU ÁRATUGI Guðni hóf mál sitt á upprifjun á hvernig við Íslendingar töluðum um nágranna okkar á Grænlandi fyrr á árum - sem var nú ekki fallegt. „Já, við verðum auðvitað að gangast við því að allt fram á síðustu áratugi var litið svo á hér á Íslandi, upp til hópa auðvitað og á því undantekningar, en upp til hópa talið að Grænlendingar gætu bara ekki ráðið sínum málum sjálfir. Þeirra samfélag væri þess eðlis að það væri ekki um það að tala.“„
„Getum eflt samskipti við Grænlendinga á svo mörgum sviðum“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta