Alexandra Briem býður sig fram til að leiða lista Pírata í borgarstjórnarkosningum í maí. Alexandra hefur verið borgarfulltrúi Pírata frá 2021 en varaborgarfulltrúi frá 2018.Dóra Björt Guðjónsdóttir, sem leiddi lista Pírata í síðustu kosningum, söðlaði um og gekk til liðs við Samfylkinguna í desember, skömmu eftir að hún hafði dregið formannsframboð sitt í Pírötum til baka.Alexandra er, eftir því sem fréttastofa kemst næst, sú eina sem hefur tilkynnt opinberlega að hún sækist eftir sæti á lista Pírata fyrir borgarstjórnarkosningarnar. Magnús Davíð Norðdahl, borgarfulltrúi Pírata, býður sig ekki fram og hættir í Pírötum að loknu þessu kjörtímabili.Píratar áttu í viðræðum um sameiginlegt framboð með Vori til vinstri og Vinstri grænum. Vor til vinstri og VG tilkynntu um sameiginlegt framboð 1