Kolbeinn Rastrick skrifar:Það hefur orðið skilnaður í kvikmyndaheiminum. Ekki skilnaður hjóna eins og gengur og gerist heldur bræðra, Safdie-bræðranna. Þeir höfðu unnið saman að hvorki meira né minna en sex kvikmyndum í fullri lengd, en aðeins einni þeirra leikstýrðu þeir ekki saman. Tvíeykið var þekkt fyrir djarfar og raunsæjar myndir. Viðföng þeirra voru oftar en ekki fólk í lægri stéttum samfélagsins sem komst í kynni við undirheimana og glæpi í viðureign sinni við lífið. Síðastliðið haust frumsýndi Benny Safdie fyrstu mynd sína án bróður síns, The Smashing Machine, við misgóðar undirtektir. Nú hefur Josh Safdie gert það sama og var Marty Supreme, nýjasta mynd hans, frumsýnd í bíóhúsum hér á landi í síðustu viku. Josh Safdie skrifaði handritið með Ronald Bronstein en Ronald var með í að