Miðað við dekkri verðbólguspá til skamms tíma þá kallar hún „alls ekki“ á vaxtalækkun í bráð, að sögn seðlabankastjóra, sem varar við því að mögulega sé að teiknast upp sú staða að hagkerfið kunni að sigla í samdrátt og aukið atvinnuleysi sem ekki verði hægt að mæta með því að ráðast í lækkun vaxta. Seðlabankinn hefur ekki fengið neina kynningu á hugmyndum stjórnvalda um skref til afnáms verðtryggingar, meðal annars að gera kröfu um lágmarksafborgun inn á lán, og telur að slíkar aðgerðir ættu fremur að vera á borði fjármálastöðugleikanefndar.