Hitafundur fór fram í Réttarholtsskóla um flutning kaffistofu Samhjálpar í gær. Íbúar segjast styðja starfsemi kaffistofunnar en nær einróma um að finna eigi henni aðra staðsetningu en á Grensásvegi. Framkvæmdastýra segir búið að gera ítarlega leit hjá borg, ríki og fjölda annarra að eign sem henti starfseminni. Hún varar við því að mál kaffistofunnar verði gert að pólitísku bitbeini fyrir kosningar í vor.