Skipstjóri erlends fiskiskips hafði samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar í gær og óskaði eftir aðstoð vegna slyss sem varð um borð í skipinu. Vír hafði slitnað og hafnað í brjóstkassa eins úr áhöfninni. Þetta kemur fram í tilkynningu Landhelgisgæslunnar. Þegar útkallið barst var skipið statt um 450 sjómílur vestur af Reykjavík, töluvert fyrir utan íslenska efnahagslögsögu. Lesa meira