Aðalsamningamaður Úkraínu, Rustem Umerov, segir þríhliða viðræður með Rússum og Bandaríkjamönnum í Abu Dhabi í dag hafa gengið vel. Rætt hafi verið um raunhæfar lausnir til að ljúka stríðinu. Lítið hefur verið gefið upp um hvað var rætt efnislega. Fyrirfram var búist við að stóru málin yrðu yfirráð í Donbas og öryggistryggingar fyrir Úkraínu. Aukinn þungi hefur verið í árásum Rússlandshers og eru margir Úkraínumenn enn án hita og rafmagns. Árásirnar hafa vakið upp spurningar í Úkraínu um hvort Rússum sé alvara með viðræðunum. Þeim verður haldið áfram á morgun. Frá fyrri viðræðum um stríðslok í Úkraínu.EPA / UAE Presidential Court /HANDOUT HANDOUT