Ryan Routh, sem skipulagði að ráða Trump af dögum í september 2024, hlaut í dag lífstíðardóm, líkt og saksóknarar höfðu farið fram á.Hann hafði beðið færis við golfvöll Trumps í nær hálfan sólarhring. Leyniþjónustumaður í lífvarðasveit Trumps kom auga á hann þar sem hann mundaði byssu við golfvöllinn. Routh tókst ekki að hleypa af skoti. Hann hafði áður verið fundinn sekur um að reyna að ráða Trump af dögum. Lengd dómsins var ákveðin í dag. Lögregla rannsakar vettvanginn þar sem Routh var handtekinn við golfvöll Trumps.EPA / CRISTOBAL HERRERA-ULASHKEVICH