Barn á yngri deild leikskólans Bakkaborgar í Breiðholti í Reykjavík var skilið eitt eftir við leikskólann við lok dags á mánudag eftir að starfsfólk skólans hafði yfirgefið svæðið. Talið er að barnið hafi verið eitt úti í um fimm mínútur áður en faðir þess kom að sækja það.