Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

„Ég er algjörlega harmi slegin“

Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra segir sjálfsagt að skipuð verði rannsóknarnefnd í kjölfar þess að menn sögðust hafa orðið fyrir ofbeldi á Bakkakoti í æsku. Mennirnir greindu frá reynslu sinni í Kveik í gærkvöld.„Ég er algjörlega harmi slegin eins og ég held að allt samfélagið sé,“ segir Inga.„Ég er nú að vona að á þessum tíma, okkar tíma, að þá séu ekki svona skelfilegir hlutir að gerast. En við getum aldrei verið örugg með það, því miður.“Inga segir að í dag séu ríkari kröfur gerðar til fósturforeldra og eftirlit sé meira.„Ég vona að við séum búin að læra það mikið af reynslunni og vondum, hræðilegum málum að við látum okkur það að kenningu verða og höldum áfram að styrkja og efla það traust sem börnin okkar eiga skilið að fá að njóta“
„Ég er algjörlega harmi slegin“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta