Þingmaður eina stjórnarandstöðuflokks Grænlands hefur þungar áhyggjur af umsvifum Guðmundar Kristjánssonar, iðulega kennds við Brim, í grænlenskum sjávarútvegi. Í óundirbúnum fyrirspurnum á þingi Grænlendinga í dag spurði hann hvort grænlenska þjóðin yrði af fé vegna innherjaviðskipta til Íslands og hvort Arctic Prime-samsteypan sem Guðmundur er stór eigandi í sé í raun leppur sem gætir hagsmuna Íslendinga.