Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Forsætisráðherra segir kerfið hafa brugðist börnunum í Bakkakoti

„Það er augljóst að kerfið bregst,“ segir Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra um frásögn fimm manna í Kveik í gærkvöld. Mennirnir voru sendir í fóstur á sveitabæinn Bakkakot á Suðurlandi sem ungir drengir og segjast hafa verið beittir grófu ofbeldi þar. Barnaverndaryfirvöld sendu börn á bæinn í tæpa þrjá áratugi, frá 1975 til 2002. Níu menn hafa krafist rannsóknar og bóta frá hinu opinbera.„Við erum á upphafmsetrunum með að taka utan um þetta mál. Fyrsta skrefið er að ég ætla að funda á morgun með fulltrúum þessara einstaklinga,“ segir Kristrún.Kristrún segir mennina hafa sýnt hugrekki og einlægni með frásögn sinni. „Það er átakanlegt að heyra þetta og þeir tjáðu sig af miklu hugrekki og einlægni og ég held að það hafi hreyft við hverjum manni sem horfði á þennan þátt.“
Forsætisráðherra segir kerfið hafa brugðist börnunum í Bakkakoti

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta