Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Þessi eru tilnefnd til viðurkenningar Hagþenkis 2026

Tilnefningar til viðurkenningar Hagþenkis verða kynntar í Borgarbókasafninu við Tryggvagötu í Reykjavík í dag. Hagþenkir hefur frá 1986 veitt viðurkenningu fyrir fræðirit, námsgögn eða aðra miðlun fræðilegs efnis til almennings. Árið 2006 var tekin upp sú nýbreytni að tilnefna tíu höfunda og bækur er til greina kæmu.Viðurkenning Hagþenkis verður veitt við hátíðlega athöfn í Þjóðarbókhlöðunni 4. mars og hlýtur verðlaunahafinn viðurkenningarskjal og 1.500.000 kr.Að valinu stendur sérstakt Viðurkenningarráð, skipað fimm félagsmönnum til tveggja ára í senn, af mismunandi fræðasviðum. Að þessu sinni skipa ráðið: Arnþór Gunnarsson, Árni Sigurjónsson, Ásdís Ingólfsdóttir, Ingibjörg Eyþórsdóttir og Kristján Leósson. Verkefnastýra ráðsins er Friðbjörg Ingimarsdóttir framkvæmdastýra Hagþenkis.
Þessi eru tilnefnd til viðurkenningar Hagþenkis 2026

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta