Sænskar flugsveitir sinntu í dag í fyrsta sinn loftrýmisgæslu hérlendis fyrir hönd Atlantshafsbandalagsins og verða með aðsetur í Keflavík næstu vikur.Þessar orrustuþotur æfðu aðflug og lendingar á Akureyrarflugvelli og urðu íbúar við Eyjafjörð líklega margir varir við það, enda mikill hávaði frá þotunum.Myndbandið hér að neðan tók Kristófer Óli Birkisson, tökumaður RÚV á Norðurlandi, af þotunum við æfingar yfir Eyjafirði um hádegisbil í dag. Í myndbandinu heyrist vélargnýrinn vel, sem endurómar í fjöllunum við fjörðinn.Sænski flugherinn æfði aðflug á Akureyri í dag með tilheyrandi vélagný. Ef veður leyfir fer sveitin í fleiri æfingaflugferðir frá Keflavík til varaflugvalla á Akureyri og Egilsstöðum í mánuðinum.Fleiri æfingar verða á Akureyri og á Egilsstöðum fram til 14. febrúar. Verkefni