New START- samkomulagið frá 2010 á að renna út á fimmtudaginn, en það er síðasti samningurinn um kjarnorkuafvopnun á milli Bandaríkjanna og Rússlands sem enn er í gildi. Ríkir mikil óvissa um hvort ríkin tvö muni ná saman um framlengingu áður en samkomulagið rennur út.