Bandaríski auðjöfurinn og mannvinurinn Bill Gates segist sjá eftir hverri mínútu sem hann varði með auðjöfrinum og barnaníðingnum látna, Jeffrey Epstein. Hann segir kolrangt að hann hafi notað Epstein til að hafa mök við konur og hafi smitast af kynsjúkdómi. Það sé þvæla og Gates segist ekki vita hvað Epstein gekk til með því að skrifa það niður í tölvupósta sem hann sendi aldrei út.