Eigandi veitingahúss í Sandgerði gagnrýnir að sveitarfélagið Suðurnesjabær sé hluthafi í veitingahúsi í Garðinum. Þetta sé mismunun sem skekki samkeppnisstöðu veitingahúsa í sveitarfélaginu.Veitingahússeigandinn, Arna Björk Unnsteinsdóttir, skrifaði gagnrýna færslu á samfélagsmiðla í lok janúar og sveitarfélagið svaraði henni með frétt á heimasíðu sinni.Veitingastaður Örnu Bjarkar heitir Sjávarsetrið. Hún segir aðspurð að málið snúist um „mismunun fyrirtækja í Suðurnesjabæ sem við höfum sjálf fundist við upplifa frá því við fórum af stað í okkar rekstri.“Suðurnesjabær á hlut í veitingastaðnum Röstinni í húsi byggðasafns Suðurnesjabæjar við Garðskagavita. Bæjarstjórinn situr í stjórn Rastarinnar. Meirihluti hlutafjárins er í eigu einkaaðila. Sveitarfélagið á átta prósenta hlut.Fjallað er um