Stefán og Finnur búa í hverfi 108 og eru uggandi yfir flutningi kaffistofu Samhjálpar í hverfið. Þeir segjast óttast að börn verði fyrir aðkasti eða vitni að ofbeldi eða vímuefnaneyslu sem þau gætu tekið inn á sig. Þeir óttast einnig að innbrotum muni fjölga samhliða flutningi kaffistofunnar. Þeir, ásamt fleirum, standa fyrir opnum íbúafundi um flutninginn í kvöld.