Marius Borg Høiby var í miklu uppnámi þegar hann bar vitni fyrir dómara við réttarhöld yfir honum í Osló í dag.Hann er ákærður í 38 liðum meðal annars fyrir nauðganir, annað kynferðisofbeldi, heimilisofbeldi og fíkniefnabrot. Málið hefur vakið gríðarlega athygli í Noregi og sömuleiðis um allan heim enda er Høiby sonur Mette-Marit, krónprinsessu Noregs og stjúpsonur Hákons krónprins.Hér að neðan má nálgast fréttavakt okkar af fyrsta degi réttarhaldanna.Høiby brast í grát þegar hann ávarpaði dómara og sagði að fjölmiðlar í Noregi hefðu áreitt hann síðan hann varð óformlegur hluti konungsfjölskyldunnar þegar hann var aðeins þriggja ára gamall. „Ég er aðallega þekktur sem sonur móður minnar, ekkert annað. Þess vegna hef ég haft gríðarlega þörf fyrir viðurkenningu annarra allt mitt líf,“ sagði