Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, skammaði fréttakonu fyrir að brosa ekki nóg og kallaði hann „hinn versta fréttamann“ eftir að hún spurði hann út í Epstein-skjölin. Á blaðamannafundi í skrifstofu forsetans í gær sagði hann, áður en hann hellti sér yfir Kaitlan Collins frá CNN, að þjóðin þyrfti að snúa sér að öðru en Epstein-skjölunum.