Þetta er sem betur fer einstætt dómsmál, ekki lögfræðilega séð en þátttakendur í því mynda persónugallerí sem við höfum aldrei séð áður,“ segir John Christian Elden, einn kunnasti lögmaður Noregs, í samtali við Morgunblaðið, um dómsmál sem Héraðsdómur Óslóar í Noregi hefur lagt heila sex réttarsali undir næstu sjö vikur og hófst klukkan níu í gærmorgun.