Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

„Það hefur aldrei verið byggður tónlistarskóli í Reykjavík“

„Tónlistarmenntun hefur verið ofboðslega öflug á Íslandi. Hvað er það sem við erum stoltust af hérna heima? Það er tónlistarlífið. Hvaða önnur atvinnugrein nær þessum árangri með svona marga fulltrúa sem ná eyrum fólks um allan heim? Þetta sprettur ekki upp úr engu,“ segir Freyja Gunnlaugsdóttir skólameistari Menntaskólans í tónlist og bætir við að tónlistarskólar um allt land séu mikilvægar menningarstofnanir.„Það verður að segjast að það hefur líka verið niðurskurður. Skólagjöld hafa hækkað, biðlistar eru langir víða. Ég myndi vilja sjá að það yrði betur búið að tónlistarmenntunni. Það hefur aldrei verið byggður tónlistarskóli í Reykjavík til dæmis,“ segir Freyja og bætir við að fjárfesting í þessu skili sér margfalt til baka.Þú getur séð meira í spilaranum hér fyrir ofan.
„Það hefur aldrei verið byggður tónlistarskóli í Reykjavík“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta