Það vakti furðu og reiði nýverið í Suður-Súdan þegar í ljós kom að einn þeirra sem forseti landsins skipaði í samráðshóp um kosningar í landinu reyndist hafa dáið fyrir fimm árum. Salva Kiir, forseti Suður-Súdans, skipaði hópinn í síðustu viku til þess að koma af stað umræðu og víðtæku samráði um hvernig halda mætti kosningar í landinu sem sífellt hefur dregist. Sem stendur er ráðgert að kosningarnar fari fram í desember. Meðal þeirra sem taka áttu sæti í hópnum var Steward Sorobo, en skömmu eftir að það var tilkynnt birtust fréttir í suðursúdönskum fjölmiðlum um að Sorobo hefði verið dáinn í fimm ár. „Skrifstofa forseta hefur því miður komist að því að einn úr hópnum er látinn,“ sagði David Amour Majur, fjölmiðlafulltrúi forsetans, í yfirlýsingu. Majur var rekinn daginn eftir að málið kom