Vladimír Pútín, forseti Rússlands, fagnar nánum pólitískum samskiptum Rússa og Kínverja, m.a. á sviði efnahags- og öryggismála. Hann sagði í samtali við Xi Jinping, forseta Kína, í gegnum fjarfundarbúnað að samband ríkjanna yki á stöðugleika heimsins á ólgutímum.