Elon Musk, auðugasti maður heims, varð á dögunum fyrsti maðurinn til að vera metinn á meira en átta hundruð milljarða dala. Er það í kjölfar þess að fyrirtækin SpaceX og xAI voru sameinuð en hann er stærsti eigandi fyrirtækjanna sem eru nú saman metin á 1,25 billjón dala (um 154 billjónir króna).