Sjálfstæðisflokkurinn nýtur mests fylgis allra flokka í Reykjavíkurborg samkvæmt nýrri skoðanakönnun Gallups fyrir Viðskiptablaðið og Samfylkingin fylgir þar fast á eftir. Báðir mælast með um þrefalt meira fylgi en sá flokkur sem mælist þriðji stærstur, sem er Viðreisn.Sjálfstæðisflokkurinn fengi 32,7% atkvæða ef kosið væri nú og Samfylkingin 29,4%. Það myndi skila báðum flokkum átta borgarfulltrúum.Viðreisn mælist þriðji stærstur með 10,0% og tvo borgarfulltrúa. Miðflokkurinn mælist litlu minni, með 9,3 prósent og tvo borgarfulltrúa eins og Viðreisn. Hann náði ekki kjöri í síðustu borgarstjórnarkosningum.Enginn annar flokkur fengi meira en einn borgarfulltrúa.Þeir sem kæmust inn í borgarstjórn með einn fulltrúa eru Píratar sem mælast með 5,0% fylgi, Sósíalistaflokkurinn með 4,1% og Vinstr