Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Blikur á lofti en samt pláss fyrir fleiri hótelherbergi

Gestum á hótelum í landinu fækkaði í desember. Gistinóttum, eins og það er orðað hjá Hagstofunni, fækkaði um rúm 11% miðað við sama mánuð í fyrra og það var þriðja mánuðinn í röð sem þeim fækkaði. Bandaríkjamönnum, sem voru flestir erlendra gesta, fækkaði um hátt í 26% en Kínverjum fjölgaði um 23%. Útlendingar eru hátt í níu af hverjum tíu sem gista á hótelum. Íslendingum hafði fækkað meira en erlendum ferðamönnum. Framboð á hótelherbergjum var meira en á árinu á undan og sér ekki fyrir endann á því. Mest bættist við á Suðurlandi og þar voru hátt í þrjú þúsund herbergi í boði á 50 hótelum en í borginni eru herbergin hátt í 5.600 á 59 hótelum.Hundruð hótelherbergja bætast við í höfuðborginni á næstunni en gestum á hótelum hefur fækkað í vetur. Formaður Fyrirtækja í hótel- og gistiþjónustu t
Blikur á lofti en samt pláss fyrir fleiri hótelherbergi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta