Söngleikurinn Ormstunga var frumsýndur í lok janúar og hefur hlotið nær einróma lof gagnrýnenda. Sýningin er byggð á Gunnlaugs sögu ormstungu og varð upphaflega til sem nemendaleikrit Hafsteins Níelssonar.Jóhannes Bjarki Bjarkason ræddi við Hafstein og Ólíver Þorsteinsson, handrits-, texta-, og tónlistarhöfunda verksins, í Lestinni á Rás 1 um tónlistina og líkindin milli kveðskapar og rapps. HRYLLINGSMYND SEM KOM ÞEIM SAMAN Þeir Hafsteinn og Ólíver kynntust þegar þeir störfuðu báðir á leikskóla og áttuðu sig á því að báðir höfðu þeir ástríðu fyrir kvikmyndum og þá helst hetjusögum. „Það var hryllingsmynd sem kom okkur saman í fyrstu, myndin It sem byggð er á bók Stephen King.“Þeir fóru fljótlega að taka upp sketsa fyrir starfsmannaskemmtun og slógu í gegn. Þeir vissu að þá langaði til a