Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Áfram austanátt

Veðrið í dag verður svipað og undanfarið, víðast hvar hófleg austanátt en syðst á landinu verður nokkuð hvasst. Þó verður víða él en bjart að mestu um landið vestanvert.Veðurspáin er svohljóðandi:Austlæg átt fimm til þrettán metrar á sekúndu, en þrettán til átján syðst. Víða él, en bjart að mestu um landið vestanvert. Hiti kringum frostmark að deginum.Svipað veður á morgun, en snjókoma eða rigning suðaustan- og austanlands síðdegis, og víða um land seint annað kvöld. Hlýnar heldur.
Áfram austanátt

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta