Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Líknarsjóði Söruh Ferguson lokað hið minnsta tímabundið vegna náinna tengsla hennar við Epstein

Starfsemi Líknarsjóðs Söruh Ferguson, fyrrverandi hertogaynju af Jórvík, verður hætt um fyrirsjáanlega framtíð eftir að bandaríska dómsmálaráðuneytið birti tölvupósta sem sýndu hve náið samband hún átti við kynferðisglæpamanninn Jeffrey Epstein.Sjóðnum er ætlað að bæta líf kvenna og barna. AP greinir frá. Ferguson sjálf og trúnaðarráð sjóðsins tóku þessa ákvörðun í sameiningu með þungum huga að því er segir í yfirlýsingu.Hún var gift Andrew Mountbatten Windsor, áður Andrési prins, sem sviptur var öllum konunglegum titlum vegna tengsla hans við Epstein. Hann er fluttur tímabundið í lítið hús við Sandringham, eitt af setrum Karls III, þar til varanlegur bústaður hans verður tilbúinn í apríl.Tölvupóstarnir sem birtir voru á föstudag sýna að Sarah Ferguson hélt sambandi við Epstein löngu eftir
Líknarsjóði Söruh Ferguson lokað hið minnsta tímabundið vegna náinna tengsla hennar við Epstein

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta