Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Íslenskur karlmaður lést af völdum berkla í janúar

Íslenskur karlmaður lést af völdum berkla í janúar. Hann er talinn hafa smitast þar sem hann dvaldi í gistiskýli í miðborg Reykjavíkur á seinasta ári að því er segir í frétt Morgunblaðsins. Maðurinn er sagður hafa verið þar tíður gestur en hann var skjólstæðingur velferðarsviðs borgarinnar. Fjölmargar berklasýkingar eru sagðar hafa greinst í skýlunum. Átta starfsmenn bráðmóttöku Landspítalans hafa greinst með berklasmit eftir skimun á síðustu misserum, enginn hefur veikst eða sýnt einkenni en flestir sendir til meðferðar við berklum. Rafn Benediktsson, framkvæmdastjóri bráða-, lyflækninga- og endurhæfingarþjónustu á Landspítalanum, sagði við fréttastofu RÚV í gær að enginn væri klínískt veikur, enginn smitandi og enginn berklafaraldur í gangi. Bráðamóttakan væri ekki uppspretta berkla. Raf
Íslenskur karlmaður lést af völdum berkla í janúar

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta