Þrjú bandarísk herskip hafa lagst við stjóra í Port-au-Prince, höfuðborg Haítí. Þarlend stjórnvöld hafa lengi glímt við glæpagengi sem hafa valdið usla og skelfingu í landinu. Óttast er að upplausnin aukist enn á næstu dögum því stjórnarumboði sérstaks forsetaráðs lýkur 7. febrúar.Sendiráð Bandaríkjanna í borginni segir í færslu á X, komu herskipanna til marks um óbilandi stuðning við öryggi og stöðugleika á Haítí. Það segir flotann hafa verið sendan að undirlagi stríðsráðherrans Pete Hegseth, sem hluti af aðgerðinni Southern Spear.Henni er ætlað að stöðva meint eiturlyfjasmygl um Karíbahaf og austanvert Kyrrahaf. Forsætisráðherrann Ariel Henry neyddist til afsagnar 2024 vegna yfirgangs glæpagengjanna og ekki hefur verið kosið á Haítí í heilan áratug. Nær algert stjórnleysi ríkir um gjörva