Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Önnur lota samningaviðræðna hefst í dag

Þríhliða viðræður sendinefnda Úkraínu, Rússlands og Bandaríkjanna um leiðir til að ljúka innrásarstríðinu hefjast að nýju í dag, í Abu Dhabi í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Viðræðurnar verða haldnar í skugga þungra loftárása Rússlandshers á orkuinnviði Úkraínu sem Volodymyr Zelensky segir til marks um lítinn samningsvilja rússneskra stjórnvalda. Þúsundir eru án rafmagns og hita í Kyiv í tuttugu gráðu frosti. Í nótt barst tilkynning um að orkuver sem nær eingöngu útvegar Kyiv rafmagn hafi laskast verulega í árás, sem orkumálaráðherrann Denys Sjmyhal kallar stríðsglæp í færslu á Telegram. Fyrsta lota viðræðnanna var um miðjan janúar, þar sem helstu ágreiningsefnin voru rædd, ekki síst eftirgjöf landsvæða í austanverðri Úkraínu. Rússar hafa sett full yfirráð yfir Donbas sem skilyrði fyrir
Önnur lota samningaviðræðna hefst í dag

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta