Grænlenskir þingmenn telja vænlegra að vinna áfram með Danmörku en að auka samvinnu við Bandaríkin standi þeir frammi fyrir þeim valkostum. Þingið tekur þannig undir það sem Jens-Frederik Nielsen, formaður landsstjórnarinnar, sagði um miðjan janúar.Þingheimur komst að þessari niðurstöðu þvert á flokka á löngum fundi á mánudag, þar sem Nielsen greindi frá stöðu mála innan konungdæmisins.Ásælni Donalds Trump Bandaríkjaforseta virðist ekki hafa aukið vinsældir Bandaríkjanna meðal Grænlendinga að sögn KNR.Talsmenn Demokraatit, flokks Nielsens, og stjórnarandstöðuflokksins Naleraq staðfesta báðir vilja til áframhaldandi samvinnu við Danmörku og talsmaður Atassut kveðst vilja að konungdæmið styrki stöðu sína frekar.Jens Napãtôĸ, talsmaður Naleraq, áréttar að samband Danmerkur og Grænlands geti t