Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Mannaðri ferð umhverfis tunglið frestað fram í mars

Artemis 2, fyrstu mönnuðu ferð Geimferðastofnunar Bandaríkjanna NASA um hálfrar aldar skeið umhverfis tunglið, hefur verið frestað fram í mars. Til stóð að skjóta hundrað metra hárri Space Launch System eldflauginni á loft á sunnudaginn kemur.Af því verður ekki eftir að tveggja daga ítarlegar prófanir leiddu í ljós talsverðan leka fljótandi vetnis og súrefnis í eldsneytiskerfi flaugarinnar, samkvæmt tilkynningu stofnunarinnar.Sérfræðingum NASA virtist upphaflega hafa tekist að draga nokkuð úr lekanum en hann færðist í aukana um það bil fimm mínútum fyrir tilraunaskot flaugarinnar. Framkvæmdastjórinn Jared Isaacman segir að ekki verði lagt í þennan sögulega leiðangur fyrr en öruggt er að allt takist giftusamlega.Næsti gluggi til tunglskots opnast sjötta mars. Artemis tvö er hvorki ætlað að
Mannaðri ferð umhverfis tunglið frestað fram í mars

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta