Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Saksóknarar halda fast í kröfu um fimm ára framboðsbann Marine Le Pen

Saksóknarar krefjast þess að áfrýjunardómstóll staðfesti fimm ára bann við framboði Marine Le Pen, leiðtoga Þjóðfylkingarinnar, til opinberra embætta í Frakklandi. Dómstóll úrskurðaði bannið á seinasta ári auk þess sem Le Pen var dæmd til fangavistar og gert að greiða háa sekt fyrir að hafa misnotað fé sem hún fékk frá Evrópuþinginu þegar hún sat þar. Le Pen hefur alltaf þvertekið fyrir brot en verður útilokuð frá forsetaframboði á næsta ári, staðfesti áfrýjunardómstóllinn niðurstöðuna. Þjóðfylkingin mælist hátt í skoðanakönnunum og Le Pen er einn vinsælasti stjórnmálaleiðtogi Frakklands. Málflutningi lýkur í febrúar. Niðurstöðu áfrýjunardómstólsins er að vænta á næstu mánuðum og þá getur Le Pen áfrýjað til hæstaréttar falli dómur henni ekki í vil. Dómarar hæstaréttar hafa sagst geta kveði
Saksóknarar halda fast í kröfu um fimm ára framboðsbann Marine Le Pen

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta