Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Bandaríkjaforseti hvetur Rússlandsforseta til að stöðva stríðið

Donald Trump Bandaríkjaforseti hvetur Vladimír Pútín Rússlandsforseta til að ljúka nærri fjögurra ára innrásarstríðinu í Úkraínu eftir að loftárásir hófust að nýju á mánudag að loknu vikulöngu hléi.Trump sagði á blaðamannafundi að Pútín hefði staðið við loforð sitt fyrir viku um að hætta árásum á orkuinnviði landsins að hans kröfu, vegna fimbulkulda. Vika væri langur tími en Rússlandsforseti ætti að stöðva stríðið algerlega.Úkraínumenn létu einnig af árásum á Rússland þessa viku sem greinendur hafa lýst sem stuttu vopnahléi. Rússlandsher skaut metfjölda eldflauga að orkuinnviðum Kyiv á mánudag í tuttugu stiga frosti, að sögn Volodymyrs Zelensky forseta.Hann segir Rússa hafa nýtt hléið til að bæta í eldflaugasafn sitt og undirbúa næstu atlögur. Samningafundir Rússa og Úkraínumanna með milli
Bandaríkjaforseti hvetur Rússlandsforseta til að stöðva stríðið

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta