Jón Magnússon, formaður samtaka vistheimilabarna, segir nauðsynlegt að mál fyrrum vistheimilabarna sem urðu fyrir ofbeldi fari í gegnum dómskerfið.„Það á bara að vera haldið dómsmál um svona, stjórnvöld eru að semja við stjórnvöld um hvað eigi að gera í þessum málum og það er bara gjörsamlega óásættanlegt. Það bara klórar hver öðrum,“ segir hann.Hann fylgdist með fréttaskýringaþættinum Kveik í kvöld þar sem rætt var við menn sem voru sendir í fóstur á sveitabænum Bakkakoti á Suðurlandi sem ungir drengir og segjast hafa verið beittir grófu ofbeldi þar.Jón telur að yfirvöld á þeim tíma hafi brugðist.„Þeir sem voru hjá félagsmálayfirvöldum og barnavernd stoppa öll málin af ef það á að gera eitthvað, alveg eins og var með Breiðavíkurmálið. Það var bara settur einhver stoppari þar á milli,“ seg