Árleg Norðurslóðaráðstefna, Arctic Frontiers, er haldin í 20. skiptið. Breytt heimsmynd og áhrif hennar á norðurslóðir var rauði þráðurinn á ráðstefnunni.Kaja Kallas, utanríkismálastjóri Evrópusambandsins, tók þátt í stórri málstofu þar sem hún sagði að breyttir tímar þýddu meira hart vald á norðurslóðum. Þar nefndi hún sem dæmi hervæðingu Rússa og fjölgun kjarnorkuvopna á Kólaskaga. Kallas tók eins fram að ekki væri hægt að horfa fram hjá harðari nálgun Bandaríkjanna, einkum gagnvart Grænlandi.Vivian Motzfeld utanríkisráðherra Grænlands upplýsti að vinnuhópur Grænlands, Danmerkur og Bandaríkjanna hafi hafið störf. Aja Chemnitz, þingmaður Grænlands á danska þinginu, upplýsti frá samtali sem hún átti með fulltrúa Bandaríkjastjórnar í gær; þar ítrekaði hún að Grænland væri ekki til sölu.