Hugur Lárusar Kristins Jónssonar, eins af mönnunum sem segjast hafa verið beittir ofbeldi á sveitabænum Bakkakoti, er ekki einungis hjá sex ára gömlum Lárusi sem var skilinn eftir í sveitinni árið 1989. Hugur hans er líka hjá börnum sem hann telur að gætu staðið í hans sporum í dag.„Ég er alveg 100% viss um að það eru einhver svona mál í gangi á Íslandi núna sem eiga ekkert eftir að verða afhjúpuð fyrr en eftir fimm, tíu, fimmtán ár eða eitthvað álíka,“ segir Lárus þar sem hann situr á heimili sínu í Búdapest í Ungverjalandi og ræðir við fréttamann Kveiks í gegnum myndsímtal.Það er ósk mannanna níu sem sendu kröfubréf til forsætisráðherra vegna þess mikla ofbeldis sem þeir segjast hafa orðið fyrir í Bakkakoti að farið sé yfir verklag og eftirlit með vistheimilum í nútímanum svo ill meðferð