Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Níu menn saka bóndakonu um gróft ofbeldi

Sveitabærinn Bakkakot er á Rangárvöllum, á milli Hellu og Hvolsvallar. Þangað var fjöldi barna sendur í vistun á að minnsta kosti 27 ára tímabili, frá 1975 til 2002. Það voru fyrst og fremst barnaverndarnefndir sem sendu börn á bæinn, en foreldrar gerðu það einnig milliliðalaust.Í fréttaskýringaþættinum Kveik í kvöld stíga fimm menn fram í fyrsta skipti, og lýsa miklu ofbeldi sem þeir segjast hafa orðið fyrir sem börn á bænum, allt til ársins 2002. Þeir segja að það hafi fyrst og fremst verið bóndakonan á bænum sem hafi beitt þá ofbeldi - líkamlegu, andlegu og kynferðislegu ofbeldi.Þá segja mennirnir að kerfið hafi algjörlega brugðist þeim.„Það var ekki bara þessi kona sem brást þeim. Það var líka barnaverndarnefnd. Það voru líka eftirlitsaðilar. Það var líka skólakerfið,“ segir Sigvarður
Níu menn saka bóndakonu um gróft ofbeldi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta