Konan sem lést var á tíræðisaldri og var í líknandi meðferð á Hraunbúðum. Aðstandendur konunnar voru grunlausir þegar lögreglan hafði samband við þá um helgina og tjáði þeim að grunur væri um að andlátið hefði borið að með saknæmum hætti. Konurnar tvær, sem starfa á Hraunbúðum, voru í kjölfarið handteknar. Annar starfsmaður tilkynnti málið til lögreglu. Heimildir fréttastofu herma að starfsfólk Hraunbúða hafi áður kvartað yfir aðstæðum á hjúkrunarheimilinu.Ríkissaksóknari fól lögreglunni á Suðurlandi að rannsaka málið vegna fjölskyldutengsla starfsmanns lögreglunnar í Vestmannaeyjum við konuna sem lést. Héraðsdómur hafnaði beiðni lögreglunnar um gæsluvarðhald. Lögreglan hefur kært þá niðurstöðu til Landsréttar.