Rafn Benediktsson , framkvæmdastjóri bráða-, lyflækninga- og endurhæfingarþjónustu á Landspítalanum, segir engin staðfest smit af klínískum eða smitandi berklum hafa komið upp á Landspítalanum. Hins vegar hafi einhverjir verið útsettir fyrir berklum og þannig orðið jákvæðir á mótefnaprófi sem notað er til að skima fyrir berklum.„Það er enginn klínískt veikur, það er enginn smitandi og það er enginn faraldur,“ segir Rafn. HEFUR ENGIN ÁHRIF Á STARFSEMI SPÍTALANS Hann segir þetta því hafa lítil sem engin áhrif á starfsemi spítalans. „Ekki í raun og veru. Það er auðvitað erfið aðstaða á bráðamóttökunni, hún er yfirfull eins og venjulega og það eru erfiðar aðstæður til einangrunar. Það setur okkur í smá vanda varðandi það að vinna vinnuna okkar. En bráðamóttakan er ekki uppspretta berkla,“ s